Ergon býður upp á vinnuvistfræði ráðgjöf til fyrirtækja, stofnanna og einstaklinga. Tilgangur þjónustunnar er að draga úr aðstæðum sem geta ógnað heilsu og vellíðan einstaklinga með því að skoða samspil þeirra við vinnuumhverfi sitt og koma með tillögur að úrbótum. Einnig er boðið upp á fræðslu og ráðgjöf um æskilega líkamsbeitingu og fleira sem stuðlað getur að bættu heilsufari og vellíðan við vinnu.